Jæja, góðan daginn gott
fólk!!!!!
Þetta er búið að vera djamm vika. Hún
byrjaði þannig að ég fór út með grúbbuni á miðvikudaginn að horfa á
fótbolta landsleik (Danmörk-Ísrael) og þannig var mál með vexti að
ef Danmörk myndi skora mark þá væri frír bjór á barnum og viti menn
eftir nokkrar mínutur skora danir fyrsta markið og þá fóru allir á
barinn og fengu sér bjór og svo eftir aðrar nokkrar mínutur skoruðu
þeir annað markið sitt og þá var farið aftur á barinn og náð í einn
til viðbótar, og vegna þess að ég keypti mér bjór þegar leikurinn
byrjaði, þá sat ég uppi með þrjá bjóra. En svo skoruðu þeir ekkert
meira, þá fórum við bara á röltið um bæinn.
Svo var farið á
discountfest(afsáttarpartý) sem studentesamfundet hélt fyrir
námsmennina og það var algjör snilld, bjór, alkahól, skot og
einhvað fleira og allt þetta kostaði bara 10Kr danskar, og svo
eftir frábæra fest var haldið niður í bæ.
Svo var það laugardagurinn, þá hélt
lísa mín upp á afmælið sitt með vinkonu sinni og þar var sko heldur
betur tjúttað enda fullt af bollu, bjór og skotum. Og svo
nátturulega, þegar fólk var orðið einhvað drukkið, var farið í
nokkra leiki sem enduðu flestir alltaf með svindli en voru þvílíkt
skemmtilegir. Þetta var allavegana vel heppnað afmæli.
Það verður ekki meira að
sinni.
C ya.